Heimili heimskunnar…

Victoria Beckham er alveg með’etta!

Posted in Fréttir, Slúður by liljakatrin on júní 9, 2011

Halló heimur!

Nú hef ég starfað á stjörnutímaritinu Séð og Heyrt síðan árið 2006 – með hléum þó. Á þessum fimm árum hef ég oftar en ekki skrifað um glæsikvendið Victoriu Beckham og hennar uppátæki. Í allan þennan tíma var stórfréttin um hana beint fyrir framan nefið á mér – ég bara sá hana ekki. Fyrr en fyrir nokkrum dögum.

Í síðustu viku fékk ég hugljómun. Eftir að hafa skoðað endalausar myndir af Vicky áttaði ég mig á því af hverju hún er alltaf svona fabjúlöss.

Afraksturinn er hér fyrir neðan.

Njótið vel og lengi!

-L

Wayne Rooney er kominn með hár!

Posted in Fréttir, Netið, Slúður by liljakatrin on júní 6, 2011

Halló heimur!

Elsku litli Wayne okkar Rooney er búinn að fara í hárígræðslu. Hipp hipp húrra fyrir því! Maður verður nú að vorkenna Wayne aðeins – sköllóttur fyrir fermingu liggur við.

En hann var að setja mynd af sér á Twitter og þetta er bara mjög smekklega gert. Alls ekkert of mikið og það verður gaman að sjá lubbann á honum eftir nokkra mánuði.

Til hamingju Wayne!

P.s: Samstarfsmaður minn Baldur Beck – þriðji frægasti starfsmaður Séð og Heyrt – skúbbaði þessu í morgunsárið.

Njótið vel og lengi!

-L

Hvað er að gerast með húðina á Beyonce?

Posted in Fréttir, Slúður by liljakatrin on maí 23, 2011

Halló heimur!

Nýjasta plata ofurdívunnar Beyonce, 4 (nei hún er ekki fjögurra ára heldur heitir platan 4), kemur í verslanir í sumar. Á umslaginu er hún miklu ljósari en á fyrri plötum. Er í alvörunni verið að reyna að gera hana að hvítri manneskju? Selur það fleiri plötur?

Djöfull fer þetta í taugarnar á mér! Ég elska Beyonce en kommon – er þetta ekki frekar asnalegt?!

Njótið vel og lengi!

-L

Fyrir og eftir

Karl Lagerfeld hannar kókflöskur!

Posted in Fréttir, Tíska by liljakatrin on maí 17, 2011

Halló heimur!

Allt er nú til. Tískukóngurinn Karl Lagerfeld hefur hannað þrjár Diet Coke-flöskur sem eru komnar í sölu í Bretlandi. Flöskurnar eru númeraðar 1, 2 og 3 og eiga örugglega eftir að ganga kaupum og sölum á ebay í nánustu framtíð. Það sem gerir þær svolítið grúví er skuggamynd af Karli sjálfum sem prýðir hverja flösku.

Flöskurnar eru aðeins seldar í Harvey Nichols-verslunum og á netinu og kosta þær 1,95 pund flaskan. Það er líka hægt að fá allar þrjár á 9,95 pund í sérstakri gjafaöskju sem var hönnuð af Karli. Fyrsta daginn sem þær voru fáanlegar seldust rúmlega þúsund flöskur.

Skiljanlega – þær eru vel flottar!

Njótið vel og lengi!

-L

Geggjað kaffihús í miðbæ Reykjavíkur

Posted in Fréttir by liljakatrin on maí 12, 2011

Halló heimur!

Ég mælti mér mót við vinkonu mína á hverfiskaffihúsinu hennar á Týsgötunni. Þetta indæla kaffihús heitir C is for Cookie. Á þetta kaffihús hafði ég aldrei komið áður en ég ætla tvímælalaust þangað aftur.

Þar er dúndurúrval af unaðskökum og ég skellti mér á eina slíka – hnetusmjörssmáköku. Þessi smákaka jafnaðist á við fullnægingu – bráðnaði upp í mér!

Andrúmsloftið er súper kósí og mig langaði eiginlega ekki að fara. Tjékkið á þessu kaffihús – þið verðið ekki fyrir vonbrigðum!

Myndirnar fékk ég af Facebook-síðu C is for Cookie.

Njótið vel og lengi!

-L

Brúðkaup Önnu Mjallar – myndir!

Posted in Fréttir by liljakatrin on maí 12, 2011

Halló heimur!

Nýtt Séð og Heyrt kemur út í dag og ég leyfi mér að segja að þetta sé besta blað ársins. Það er stútfullt af dínamísku efni – exclusive myndir úr brúðkaupi Önnu Mjallar og Cal Worthingtons, tonn af myndum úr 100 ára afmæli Vals, viðtal við fegurðardís sem lætur gott af sér leiða, viðtal við fréttahaukinn Helga Seljan og mynd af Alexander McQueen-kjól Dorrit Moussaieff. Þetta er bara brotabrot af dínamíkinni sem einkennir þetta blað.

Njótið vel og lengi!

-L

RIP Séð og Heyrt stúlka

Posted in Fréttir, Slúður by liljakatrin on maí 7, 2011

Halló heimur!

Innan skamms hverfur Séð og Heyrt stúlkan úr blaðinu. Það er vissulega bitursætt en hún hefur verið í blaðinu í fimmtán ár og kominn tími til að hvíla hana aðeins.

Margar þjóðþekktar konur hafa hlotið þann heiður að vera Séð og Heyrt stúlkan – Birgitta Haukdal, Ásdís Rán og Elísabet Davíðs. Kíkið á þetta myndbrot til að fara aftur til fortíðarinnar í höll minninganna.

Njótið vel og lengi!

-L

Trúlofuð söngdíva og Eurovision-stjarna eignast tvíbura!

Posted in Fréttir by liljakatrin on maí 6, 2011

Halló heimur!

Í nýjasta Séð og Heyrt er sagt frá trúlofun söngdívunnar Heru Bjarkar og að Sigga Beinteins sé búin að eignast tvíbura. Þetta er bara brota brot af því sem er í blaðinu. Stútfullt og skemmtilegt! Tryggið ykkur eintak í tíma.

Njótið vel og lengi!

-L

Sætindi án hitaeininga

Posted in Bakstur, Fréttir by liljakatrin on maí 6, 2011

Halló heimur!

Tjékkið á þessum unaði í nýjasta Séð og Heyrt!

Njótið vel og lengi!

-L

Blaðakonur berjast

Posted in Fréttir, mamma by liljakatrin on janúar 7, 2011

Halló heimur!

Í þessari viku þurfti ég að verja titil minn í spurningakeppni Fréttatímans eftir frækinn sigur sem var vel dokumenteraður á þessu bloggi.

Að þessu sinni var andstæðingur minn Erla Hlynsdóttir – ein fallegasta og fróðasta fjölmiðlakona landsins. Plús það er Erla góð vinkona mín. Mér leist ekkert á blikuna enda Erla mun gáfaðri en ég.

En viti menn, litla Lilja náði að merja sigur, þó bara með einu stigi. Ég þakka heppninni fyrir það þar sem ég fylgdist ekkert með stóra samlokumálinu og giskaði því á skinku. Giskið bjargaði mér!

Njótið vel og lengi!

-L