Heimili heimskunnar…

Stelpa tattúverar 152 Facebook-vini sína á handlegginn!

Posted in Netið by liljakatrin on júní 10, 2011

Halló heimur!

Youtube-notandinn susyj87 er enginn venjulegur Hollendingur. Hún ákvað að fá sér húðflúr og eitt var ekki nóg. Hún vildi hylla vini sína á Facebook – alls 152 stykki.

Susyj87 ákvað að tattúvera myndir af þessum 152 vinum á handlegginn á sér og setti að sjálfsögðu myndband af því á Youtube.

Þetta hefur hollenski flipphausinn að segja um myndbandið:

„Að sjálfsögðu hugsaði ég mig vel um. Þetta eru ekki allir vinir mínir. Bara fólkið sem mér þykir vænst um. Ég fékk leyfi frá þeim og þeir eru mjög stoltir að vera hluti af húðflúrinu. Fyrir mér er þetta tákn um hver ég er núna.“

Njótið vel og lengi!

-L

UPPFÆRT: Þetta er víst publicity stunt. En fyndið engu að síður. Þetta er sem sagt sviðsett.

Wayne Rooney er kominn með hár!

Posted in Fréttir, Netið, Slúður by liljakatrin on júní 6, 2011

Halló heimur!

Elsku litli Wayne okkar Rooney er búinn að fara í hárígræðslu. Hipp hipp húrra fyrir því! Maður verður nú að vorkenna Wayne aðeins – sköllóttur fyrir fermingu liggur við.

En hann var að setja mynd af sér á Twitter og þetta er bara mjög smekklega gert. Alls ekkert of mikið og það verður gaman að sjá lubbann á honum eftir nokkra mánuði.

Til hamingju Wayne!

P.s: Samstarfsmaður minn Baldur Beck – þriðji frægasti starfsmaður Séð og Heyrt – skúbbaði þessu í morgunsárið.

Njótið vel og lengi!

-L

Hrikalegustu augabrúnir í heimi!

Posted in Netið, Tíska by liljakatrin on apríl 13, 2011

Halló heimur!

Æi, hvað er að fólki? Augabrúnasnyrting eru engin geimvísindi!

Njótið vel og lengi!

-L

Gróft svindl hjá H&M!

Posted in Netið, Tíska by liljakatrin on apríl 6, 2011

Halló heimur!

Ég er nýkomin frá Kaupmannahöfn og þræddi þar allar H&M-verslanir að leita að kjólnum sem þið sjáið hér fyrir neðan. Því miður fann ég ekki kjólinn sem ég þráði svo heitt og pantaði hann á mánudaginn fyrir 399 danskar krónur sem er í dýrari kantinum hjá H&M.

Í dag fékk ég meldingu um að það væri byrjuð útsala í H&M-vefversluninni og brá í brún þegar ég sá kjólinn minn þar. Hann er búinn að lækka í 299 danskar krónur en ég gat ekki breytt pöntuninni því það er búið að afgreiða hana.

Það sem mér brá meira við að sjá er að í vefversluninni er því haldið fram að hann hafi áður kostað 599 danskar krónur þegar ég keypti hann á fullu verði fyrir nokkrum dögum á aðeins 399 danskar krónur.

Ég hélt að H&M væri betra en þetta en greinilega ekki.

Njótið vel og lengi!

-L

Clueless-stjarnan sem hefur ekkert breyst!

Posted in Netið by liljakatrin on apríl 4, 2011

Halló heimur!

Ég veit ekki með ykkur en ég horfði á Clueless svona fimm milljón sinnum þegar hún kom út árið 1995. Þess vegna gladdi mig mikið að sjá nýja mynd af Stacey Dash sem lék Dionne, bestu vinkonu hennar Cher, í myndinni.

Stacey þessi hefur akkúrat ekkert breyst síðan myndin varð heimsfræg en skemmtilegt er að Dionne átti að vera sextán ára í myndinni en Stacey var í raun 29 ára. Í dag er hún 45 ára og alveg jafn ungleg. Vel gert Stacey!

Njótið vel og lengi!

-L

45 ára - 29 ára

Sex tískutrend sem karlmenn hata

Posted in Netið, Tíska by liljakatrin on mars 28, 2011

Halló heimur!

Þessi vefsíða ákvað að leita til karlpeningsins og athuga hvaða tískutrend þeir hötuðu mest. Nú liggja úrslitin fyrir og mér finnst þau frekar dapurleg – nema þetta með sokkana og sandalana – það er náttúrulega fáránlegt! Og reyndar Ugg-stígvélin en það er bara út af því að ég er komin með ógeð á mínum.

En hérna koma úrslitin stelpur – hvað finnst ykkur?

Njótið vel og lengi!

-L

Ótrúlegt en satt – umbreyttar Idol-stjörnur!

Posted in Netið, Slúður by liljakatrin on mars 17, 2011

Halló heimur!

Peningar kaupa ekki ást en þeir kaupa stíl!

Njótið vel og lengi!

-L

Nýja greiðslan hennar Jennifer Aniston – HEITT!

Posted in Netið, Slúður, Tíska by liljakatrin on febrúar 23, 2011

Halló heimur!

Það var mikið að hún Jennifer Aniston breytti um hárgreiðslu. Þessi elska er búin að vera með sama dúið endalaust lengi en þetta nýja lúkk er alveg að gera sig. Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að hárið á Jennifer er án efa eitt frægasta hár í heimi. Meira svona Jennifer!

Njótið vel og lengi!

-L

Óhugnalegt – varir sem líta út eins og dýr!

Posted in Netið, Tíska by liljakatrin on febrúar 21, 2011

Halló heimur!

Listakonan Paige Thompson hefur vakið þónokkra athygli á internetinu upp á síðkastið eftir að hún fór að leika sér með andlitsmálningu og bjó til hin ýmsu dýr með vörunum á sér. Sniðug hún Paige en rosalega finnst mér þetta krípí – sérstaklega pandan. Hvað með ykkur?

Njótið vel og lengi!

-L

Jordan með fatalínu – heitt eða hryllingur?

Posted in Netið, Slúður, Tíska by liljakatrin on febrúar 13, 2011

Halló heimur!

Glamúrpían Katie Price, a.k.a Jordan, er komin með fatalínu. Já, allt er nú til. Línan heitir Day 22 og Jordan hélt smá tískusýningu í dag til að sýna herlegheitin.

Að mínu mati er þetta algjör hryllingur og vona ég innilega að fólk fari ekki að kaupa þennan horbjóð. Gæti þetta verið meira lummó og old news?

Njótið vel og lengi!

-L