Klikkaðar karamelluuppskriftir!
Halló heimur!
Hvernig væri að baka eitthvað dásamlegt um helgina? Hér koma fallegar uppskriftir úr Séð og Heyrt en myndirnar tók Rakel Ósk Sigurðardóttir.
Stærri útgáfu er að finna hér: karamellukreisíness
Njótið vel og lengi!
-L
Ætlar þú að baka um áramótin? Hér er uppskriftin!
Halló heimur!
Ég vona að áramótin fari vel með ykkur. Því ekki að fagna þeim með þessum dýrindis súkkulaðimúffum? Þær eru geðsjúkar – ég lofa því!
Stærri útgáfu má finna hér: súkkulaðimuffins
Njótið vel og lengi!
-L
Hinn fullkomni kanilsnúður – uppskrift
Þessi kaka er rugl – uppskrift!
Halló heimur!
Þessi kaka er ólýsanlega góð. Ég borðaði mig stútfulla, ældi aðeins upp í mig, fór á rúntinn með Bjössa Blö og kláraði svo kvikindið (sko kökuna, ekki stjörnuljósmyndarann).
Þetta lostæti fær tíu Ornellur, hundblautar í baði, af sex mögulegum.
- Part I
- Part II
Til að sjá stærri útgáfu klikkið hér.
Njótið vel og lengi!
-L
Arnar Grant og Ívar Guðmunds skreyta kökur – myndir!
Halló heimur!
Í þættinum hennar Tobbu á Skjáeinum í kvöld spreyta massabræðurnir Arnar Grant og Ívar Guðmunds sig í kökuskreytingum. Ekki missa af því!
- Anna Katrín og Krummi
- Stoltur
- Pósa
- Rómó hjá Arnari
- Strákakakan hans Ívars
Njótið vel og lengi!
-L
Dásamlegar Daim-smákökur – uppskrift
Halló heimur!
Já, ég er byrjuð á jólabakstrinum – eða réttara sagt ég er byrjuð að prófa að baka þær smákökur sem ég væri til í að mönsja um jólin. Hér er uppskrift sem kom hressilega á óvart!
Smellið hér fyrir neðan til að fá stærri útgáfu af uppskriftinni:
Njótið vel og lengi!
-L
Sjáið þetta stjörnusnúllubuff!
Halló heimur!
Mad Men-stjarnan January Jones eignaðist lítinn dreng þann 13. september og að sjálfsögðu náðu paparassarnir að festa hann á filmu í gær.
Litla snúllubuffið heitir Xander – gæti hann verið sætari?
Fyrir þá sem eru ekki að pissa í sig yfir dúllulegum börnum þá er January í blúndutoppi frá Alexu Chung for Madewell.
Njótið vel og lengi!
-L
Karamellubrownies – uppskrift
Halló heimur!
Loksins, loksins sýni ég lit á þessu blessaða bloggi. Eins og ykkur sé ekki drullusama!
En allavega, þá byrjaði ég með uppskriftarsíðu í Séð og Heyrt fyrir stuttu og langaði að deila með ykkur uppskrift af yndislegum karamellubrúnkum.
Njótið vel og lengi!
-L
Sjá stærri útgáfu hér:
Dagurinn sem ég gleymi aldrei
Halló heimur!
Ég hef nú ekki gert lítið af því í gegnum tíðina að gera mig að fífli. Einum degi gleymi ég samt ekki. Daginn sem Eiríkur Jónsson, fyrrverandi ritstjóri Séð og Heyrt, lét mig fá verkefni aldarinnar – að hringja í Margréti Frímannsdóttur og spyrja hana hvort henni hefði einhvern tímann verið ruglað saman við stórleikarann Morgan Freeman því nöfnin þeirra væru svo lík.
Með hangandi höfði hringdi ég í Margréti sem fattaði ekki brandarann. Úr varð sú epíska snilld sem gengur undir nafninu Klingjandi samhljómur. Sjáið hér fyrir neðan linkinn á unaðinn.
Njótið vel og lengi!
-L
Þegar ég breyttist í mömmu
Halló heimur!
Móðir mín blessunin eru úr Fljótunum í Skagafirði og var því ávallt haldið í langferð á sumrin á mínum uppvaxtarárum og þessi „fallegasti fjörður landsins“, eins og móðir mín heldur fram, heimsóttur.
Þetta var að sjálfsögðu fyrir tíma Hvalfjarðarganganna og í huga lítillar stúlku tók það heila eilífð að komast í Fljótin. Oftar en ekki sat ég í miðjunni, sem ég þoldi ekki, á milli tveggja eldri systra sem höfðu gerst svo séðar að taka upp vel valin lög með Michael Jackson, U2, Simply Red og Duran Duran sem þær hlustuðu á vasadiskóunum sínum á meðan mér drepleiddist.
Eins og ungum krökkum sæmir spurði ég reglulega hvað væri eiginlega langt í þessi Fljót.
„Smástund,“ svaraði móðir mín um hæl er við keyrðum inn í Hvalfjörðinn.
Eftir fleiri ferðir í Fljótin en góðu hófu gegnir vitkaðist ég og fattaði að móðir mín var bara að ljúga. Það tók enga smástund að keyra í Fljótin. Það tók marga klukkutíma. Því brá ég á það ráð að spyrja fyrst mömmu hvað væri langt eftir og snúa mér svo að föður mínum sem sagði alltaf sannleikann.
„Það eru að minnsta kosti fjórir tímar.“
Um verslunarmannahelgina keyrði ég norður með mína fjölskyldu – kærasta, dóttur og fimm ára stjúpson. Við Esjurætur blossaði óþolinmæðin upp í stjúpsyninum og hann spurði í fyrsta en alls ekki seinasta sinn hvað væri langt eftir. Kærasti minn sneri sér að honum og sagði sannleikann, rétt eins og faðir minn gerði forðum.
„Það er rosalega langt eftir.“ Þegar leið á ferðina og röðin komin að mér að svara hvenær við yrðum eiginlega komin svaraði ég, algjörlega án þess að hugsa.
„Eftir smástund.“
Ég breyttist í móður mína um verslunarmannahelgina.
____
Móment úr 33. tölublaði Séð og Heyrt.
Njótið vel og lengi!
-L


















leave a comment